25. september 2008

LÖG BJÍ


Lög BJJ Sambands Íslands (BJÍ)

1. gr.

Sambandið heitir BJJ Samband Íslands (BJÍ) er æðsti aðili um öll mál er varða BJJ (Brasíliskt Jiu Jitsu) á Íslandi.

2. gr.

BJÍ er félagasamband og varnarþing er í Reykjavík. BJÍ er samband félaga, sem hafa iðkun BJJ innan sinna vébanda.

3. gr.

Tilgangur BJÍ er í meginatriðum:


a) Að hafa yfirumsjón allra íslenskra BJJ mála.

b)Að vinna að eflingu BJJ íþróttarinnar í landinu og að komast inn í héraðsambönd og gerast aðili að ÍSÍ.

c) Að koma fram erlendis fyrir hönd hennar.

d) Að stjórna árlegu Íslandsmóti.

4. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með eftirfarandi starfsemi:


a) Aðalfundi BJÍ

b)Starfi stjórnar BJÍ.

Aðalfundur BJÍ fer með æðsta vald í málefnum BJÍ. Aðalfund sitja fulltúar frá þeim aðilum, sem mynda BJÍ. Fulltrúafjöldi hvers aðila er ótakmarkaður en hvert félag hefur eitt atkvæði til kosningar um málefni .Til að hafa atkvæðarétt skal félagið sýna fram á virka starfsemi með hið minnsta 20 iðkendur. Séu iðkendur færri fyrirgerir viðkomandi félag atkvæðarétt á aðalfundi. Málefni sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á aðalfundi skal tilkynna stjórn BJÍ minnst 21 dögum fyrir hann.
Þá skal stjórn BJÍ tilkynna sambandsaðilum dagskrá fundarins ásamt tillögum og lagabreytingum sem borist hafa í síðasta lagi 14 dögum fyrir hann, sem síðara fundarboð. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað.


5.gr

Stofnfélagar BJÍ eru:

Árni Þór Jónsson

Daníel Örn Davíðsson

Haraldur Óli Ólafsson

Sigursteinn Snorrason

Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson

6.gr

Öll íþróttafélög sem iðka BJJ á Íslandi geta sótt um inngöngu í BJÍ. Umsóknir um inngöngu í BJÍ eru samþykktar á stjórnarfundum BJÍ.

7. gr.

Stjórn BJÍ skal skipuð 4 félagsmönnum, formaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Skal kjósa bundinni leynilegri kosningu, formann fyrst, síðan meðstjórnanda. Einnig skal kjósa 3 manna mótanefnd og landsliðsþjálfara. Stjórnarmenn eru kosnir til eins árs í senn og eru þeir og formaður kosnir á aðalfundi. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfund þegar þurfa þykir. Daglega umjón sambandsins annast stjórnarmenn BJÍ. Firmaritun sambandsins eru í höndum allrar stjórnar.

8. gr

Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Á aðalfundi BJJ hafa fulltrúar einir atkvæðisrétt, en auk þeirra eiga rétt á fundarsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt:

  1. Stjórn BJÍ.

  2. Fulltrúar BJJ félaga á Íslandi.

  3. Fastráðnir starfsmenn BJÍ.

  4. Allir nefndarmenn BJÍ.

9. gr.

Árgjald í sambandið er 10.000 krónur ef félag hefur færri en 50 iðkendur en 20.000 ef félag hefur fleiri en 50 iðkendur. Einnig skal BJÍ sjá um að innheimta keppnisgjöld á mót á vegum BJÍ.

10. gr.

Rekstrarafgangi af starfsemi samandsins skal varið í frekari keppnisstarfsemi og að efla landslið í BJJ sem keppir erlendis eða innanlands á vegum BJÍ.

11. gr.

Ákvörðun um að leggja BJÍ niður má aðeins taka fyrir á lögmætum aðalfundi BJÍ. Til þess að samþykkja þá tillögu, þarf minnst 3/4 hluta atkvæða. Hafi slík tillaga verið samþykkt skal gera öllum sambandsaðilum grein fyrir henni í fundargerð. Eignir BJÍ skulu renna til ÍSÍ (Íþrótta og ólympíusamband Íslands).

12. gr.

Starf aðalfundar fer þannig fram:


    1. Setning.
    2. Kosnir fastir starfsmenn fundar3. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína.
    4. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga sambandsins til samþykktar.
    5. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
    6. Lagðar fram laga- og leikreglnabreytingar.
    7. Lagðar fram aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnar

  • HLÉ


    8. Álit og tillögur og atkvæðagreiðslur um þær.
    9. Önnur mál.
    10. Kosning stjórnar, og endurskoðenda.
    11. Fundarslit.

Einfaldur meirihluti ræður úrslitum, nema um lagabreytingar sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta atkvæða viðstaddra fulltrúa.
Ársskýrslu BJÍ sem stjórnin skal leggja fjölritaða fyrir fundinn, svo og ágrip af fundargerð, skal senda sambandsaðilum BJÍ innan tveggja mánaða frá fundarlitum.

Lög þessi voru sammþykkt á stofnundi félagsins og öðlast gildi frá og með þeim degi

Reykjavík 16. ágúst 2008.