Gunnar Nelson lenti í fjórða sæti á ADCC mótinu í Barcelona. Gunnar vann þungaviktarmanninn Jeff Monsoon í fyrstu umferð og kom það flestum á óvart enda Monsoon með sigursælan feril að baki. Í 8 manna úrslitum vinnur hann svo David Alvao en tapar svo fyrir David Avellan í undanúrslitum. Gunnar mætti ákveðinn í bronsbardagann en tapar á síðustu sekúndunni þegar andstæðingur hans nær að fella Gunnar í gólfið og fær því tvö stig og vinnur 2-0 í framlengingu. En Gunnar sýndi frábæran árangur á einu sterkasta móti heims og sannar það enn og aftur að hér er einn besti íþróttamaður Íslands á ferð.
(27.9.2009)